Íbúar geta nú sent ábendingar með mynd og staðsetningu beint úr Fjarðabyggðarappinu og valið að fá ýtitilkynningar eftir byggðarkjörnum og efnisflokkum. Nýjungarnar eru viðbót við íbúaappið sem hefur verið í þróun á þessu ári í samstarfi við Markaðsdeildina.
Með ábendingakerfinu geta íbúar komið ábendingum á framfæri við sveitarfélagið og fylgst með framgangi þeirra. Notandinn velur viðeigandi flokk, merkir staðsetningu og getur bætt við mynd til að lýsa erindinu betur.
Hver ábending fer í skilgreint ferli frá móttöku til úrlausnar. Kerfið veitir starfsfólki yfirsýn yfir stöðu mála, auðveldar að koma ábendingum til réttra aðila og heldur utan um samskipti og svör til íbúa. Ábendingar um sama atriði má tengja saman og afgreiða í einu lagi. Íbúar geta einnig tekið undir ábendingar annarra, sem getur hjálpað við forgangsröðun verkefna.
„Það skiptir máli að íbúar eigi auðvelt með að koma ábendingum til okkar og fá upplýsingar um afgreiðslu þeirra. Jafnframt viljum við að upplýsingar frá sveitarfélaginu nái til fólks. Þessar nýjungar eru liður í að bæta þjónustuna og samskiptin við íbúa í öllum byggðarkjörnum Fjarðabyggðar,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri.
Tilkynningar eftir þínu vali
Nýtt tilkynningakerfi gerir sveitarfélaginu kleift að miðla upplýsingum beint til íbúa með ýtitilkynningum í appinu. Notendur velja sjálfir hvaða byggðarkjörnum og efnisflokkum þeir vilja fylgjast með og fá eingöngu tilkynningar sem falla að því vali.
Ekki þarf að skrá sig inn eða gefa upp persónuupplýsingar til að fá ýtitilkynningar. Notendur velja einfaldlega það sem þeir vilja fylgjast með í appinu og heimila því að senda tilkynningar.
Þróað í samstarfi við heimamenn

Appið er unnið af Markaðsdeildinni í samstarfi við Fjarðabyggð, en að baki verkefninu standa heimamennirnir Árni Már Valmundarson og Heimir Arnfinsson. Gert er ráð fyrir að appið verði áfram þróað í takt við þarfir sveitarfélagsins og íbúa þess.
„Við viljum að appið sé gagnlegt í daglegu lífi íbúa. Með þessum viðbótum verður auðveldara að benda á það sem betur má fara og fá upplýsingar um það sem skiptir hvern og einn máli. Sem heimamönnum þykir okkur sérstaklega ánægjulegt að vinna að lausn sem nýtist samfélaginu okkar,“ segja Árni Már og Heimir hjá Markaðsdeildinni.
Sækja má Fjarðabyggðarappið í App Store og Google Play.
