Fara í efni
02.09.2016 Fréttir

Nýr áningastaður í smíðum

Deildu

Steinlögð aðkomustétt, göngustígar, trépallar og salernisaðstaða er á meðal þeirra verkefna sem unnið er að. Einnig verða settar upp varnagirðingar við námu og námuop, upplýsingaskillti og áningaraðstaða fyrir gesti með borðum og stólum ásamt bílastæðum, auk þess sem hlaðinn steinveggur mun prýða ásýnd staðarins.

Náman og svæðið umhverfis hana hefur verið friðlýst sem náttúruvætti. Í því felst m.a. að staðurinn er ætlaður til almennrar útiveru og náttúruskoðunar. Ekki er því í skipulagi Fjarðabyggðar gert ráð fyrir öðrum mannvirkjum en þeim sem vænta má vegna almennrar útivistar og náttúruskoðunar, s.s. stígum, skiltum, áningarstöðum og bílastæðum fyrir göngu- og ferðafólk.

Silfurberg gegndi mikilvægu hlutverki í náttúruvísindalegum rannsóknum 18. og 19. aldar og lagði með því grunninn að margvíslegum tækniframförum 20. aldarinnar. Bergið úr Helgustaðarnámu var sérlega tært og var eftir því eftirsótt.

Framkvæmdin er styrkt að helmingshluta af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Um hönnun mannvirkja og landslagsmótun sá Landmótun. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í októberbyrjun.