Fara í efni
14.11.2024 Fréttir

Nýr forstöðumaður menningarstofu ráðinn

Deildu

Þórhildur Tinna kom til starfa sem verkefnastjóri menningarstofu í september á þessu ári. Þórhildur er með masterspróf í menningar- og liststjórnun og BA gráðu í listfræði. Hún hefur víðtæka reynslu af verkefna- og viðburðastjórnun ýmissa viðburða, bæði stórra sem smárra hér á landi sem erlendis. Hún hefur jafnframt borið ábyrgð á sýningastjórnun og verið framkvæmdastjóri listahátíða.

Þórhildur tekur til starfa sem forstöðumaður 1. desember 2024.

Við óskum Þórhildi Tinnu til hamingju með nýja starfið.