Vinna við uppbyggingu göngustíga við Bleiksá á Eskifirði er hafin. Nýr stígur innan við ána er þegar farinn að taka á sig mynd og undirbúningur framkvæmda austan Bleiksár stendur yfir.

Stígur innan við Bleiksá tekur á sig mynd
Göngustígurinn innan við Bleiksá liggur frá grafreitnum, í gegnum skógræktarsvæðið og upp að fyrirhugaðri göngubrú yfir ána. Stígagerðin gengur vel og lega stígsins er þegar orðin greinileg í landslaginu.
Í skógarlundi við stíginn verður komið upp dvalarsvæði með setbekk og upplýsingaskilti. Þar verður grjóti jafnframt vélraðað til að afmarka svæðið og laga það að umhverfinu.
Framkvæmdir austan Bleiksár fram undan
Undirbúningur er einnig hafinn að lagningu nýs göngustígs austan Bleiksár og ráðgert er að jarðvinna hefjist á næstu dögum. Stígurinn mun liggja frá skrúðgarðinum við tjaldsvæðið, fram hjá Myllunni og upp að fyrirhugaðri göngubrú. Þaðan mun hann liggja áfram upp hlíðina að fyrirhuguðum útsýnispalli neðan Bleiksárfoss.

Við Mylluna verður útbúið dvalarsvæði með setbekk, upplýsingaskilti og vélröðuðu grjóti. Gert er ráð fyrir lýsingu meðfram stígnum austan Bleiksár og einnig er ráðgert að setja upp nýja lýsingu við Bleiksárfoss.
Stígarnir felldir að landslaginu
Báðir stígarnir verða tveggja metra breiðir og lagðir þannig að þeir fylgi landslaginu eins og kostur er. Raski á gróðri og landi verður haldið í lágmarki. Að framkvæmdum loknum verða gróðurtorfur og annað gróðurlag nýtt við frágang til að stuðla að uppgræðslu og endurheimt staðargróðurs.
Svæðið hefur verið minjaskráð og þar er að finna fornleifar. Við undirbúning framkvæmdanna var haft samráð við Minjastofnun Íslands, Skógræktarfélag Eskifjarðar og íbúasamtök á Eskifirði. Tekið verður sérstakt tillit til minja og umhverfis meðan á framkvæmdum stendur.
Með uppbyggingunni verður til samfellt og aðgengilegra stígakerfi við Bleiksá sem tengir saman útivistarsvæðið, Mylluna, fyrirhugaða göngubrú og Bleiksárfoss.
