Að afloknu hæfnismati sem byggði á kröfum til starfsins var ákveðið að ráða Ástu. Með ráðningu mannauðsstjóra hjá Fjarðabyggð er bæjarstjórn að leggja aukna áherslu á mikilvægi mannauðsmála á víðum grunni sem leiða á til eflingu liðsheildar og stuðningi við starfsemina.
Ásta Sigríður er með masterspróf í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Hún hefur víðtæka reynslu af mannauðsmálum og starfað við þau beint í liðlega sex ár sem sérfræðingur í mannauðsteymi Íslandsbanka. Meðal verkefna sem hún hefur sérhæft sig í eru: jafnlaunavottun, vellíðan í vinnu og efling liðsheildar.