Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hafa undirritað nýjan málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026–2030 og þar með myndað áframhaldandi meirihluta í sveitarfélaginu. Samningurinn var undirritaður í Safnahúsinu í Neskaupstað, laugardaginn 23. maí síðastliðinn.

Flokkarnir hafa starfað saman í meirihluta frá árinu 2024 og mátu það svo að farsælast væri að halda því samstarfi áfram enda hafi það gengið vel, byggst á gagnkvæmu trausti og sameiginlegri sýn um framtíð Fjarðabyggðar.
Í sameiginlegri yfirlýsingu flokkanna kemur fram að á síðustu tveimur árum hafi tekist að ná mikilvægum árangri í rekstri sveitarfélagsins með aukinni fjárhagslegri festu, ábyrgari rekstri og markvissri uppbyggingu innviða og samfélagsverkefna. Flokkarnir telja mikilvægt að byggja áfram á þeim grunni á næsta kjörtímabili.
Helstu áherslumál meirihlutans á komandi kjörtímabili verða:
- áframhaldandi traustur rekstur sveitarfélagsins og lægri skattar,
- markviss atvinnuuppbygging og efling hafna og atvinnulífs,
- öflug uppbygging í íþrótta- og æskulýðsmálum.
Í málefnasamningnum er meðal annars lögð áhersla á áframhaldandi uppbyggingu Mjóeyrarhafnar, framkvæmdir við nýtt íþróttahús á Eskifirði, fjölgun leiguhúsnæðis, aukna þjónustu við eldri borgara, uppbyggingu innviða og áframhaldandi sókn í atvinnumálum.
Þuríður Lillý Sigurðardóttir sagði: ,,Málefnasamningurinn sem var undirritaður ber merki um framsýna hugsun og drifkraft til að efla sveitarfélagið Fjarðabyggð enn frekar. Við erum ánægð með samninginn og hlökkum til vinna að þeim málefnum sem fram koma í honum. Samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn hefur gengið vel síðustu tvö ár og hef ég trú á að svo verði áfram. Við erum einhuga í því að efla sveitarfélagið okkar enn frekar og tryggja að íbúum þyki gott að búa í Fjarðabyggð."
Ragnar Sigurðsson sagði: „Ég er mjög ánægður með þann málefnasamning sem hefur verið undirritaður og hlakka til áframhaldandi samstarfs við Framsókn í Fjarðabyggð. Við höfum unnið vel saman undanfarin tvö ár og byggt upp traust, festu og sameiginlega sýn á framtíð sveitarfélagsins. Nú tekur við spennandi kjörtímabil þar sem við ætlum að halda áfram að styrkja rekstur sveitarfélagsins, byggja upp innviði og skapa enn betra samfélag fyrir íbúa Fjarðabyggðar.“
Flokkarnir leggja jafnframt áherslu á áframhaldandi gott samstarf, aukna samvinnu við íbúa og íbúasamtök, gagnsæ vinnubrögð og gott upplýsingaflæði.
Jóna Árný Þórðardóttir verður endurráðin sem bæjarstjóri en hún hefur verið bæjarstjóri frá árinu 2023.