Í dag, fimmtudaginn 5. febrúar, var ný 360° sýndarferð um Fjarðabyggð sett í loftið á fundi bæjarstjórnar, þegar Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar, tók vefinn formlega í notkun.
Sýndarferðalagið gerir fólki kleift að skoða náttúru og áhugaverða staði víðsvegar um sveitarfélagið á nýstárlegan og lifandi hátt.
Verkefnið samanstendur af 144 víðmyndum (panorama) sem teknar hafa verið með dróna á síðustu tveimur árum. Hver víðmynd er sett saman úr 24 myndum sem teknar eru í allar áttir og tengdar saman í eitt gagnvirkt ferðalag. Notendur stýra upplifuninni með því að hreyfa myndina og smella á aðra myndatökustaði til að „hoppa“ milli staða.
Markmið verkefnisins er að kynna einstaka náttúru Fjarðabyggðar, vekja áhuga og stuðla að aukinni vitund um svæðið, bæði meðal ferðamanna og íbúa. Nú gefst fólki kostur á að „taka flugið“ og skoða staði sem það hefur ekki séð áður eða á ekki kost á að heimsækja.
„Vefurinn opnar ný tækifæri fyrir sveitarfélagið, íbúa þess sem og gesti, ekki aðeins til kynningar heldur líka sem verkfæri til skráningar og miðlunar. Hér skapast góður grunnur til að kortleggja gönguleiðir, halda utan um örnefni og varpa ljósi á áhugaverða sögustaði á aðgengilegan og lifandi hátt. Þá bíður þetta upp á að hægt er að skoða og skipuleggja ferðir um Fjarðabyggð fyrir þá sem á það hyggja og ekki síður bara að njóta fallegrar náttúru okkar góða sveitarfélags.“ segir Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.
Grunnurinn að verkefninu getur nýst sveitarfélaginu, við örnefnaskráningu, landeigendum, ferðaþjónustuaðilum, hreindýraveiðimönnum, skólum og björgunarsveitum, eða einfaldlega öllum sem vilja kynnast svæðinu betur. Verkefnið er lifandi og verður uppfært í framtíðinni með fleiri myndum og frá fleiri sjónarhornum, bættum myndgæðum og auknum upplýsingum í takt við nýja tækni og framsetningarmöguleika.
Best er að skoða ferðalagið á góðum skjá, en einnig er hægt að upplifa það með sýndarveruleikagleraugum.
Hafþór Snjólfur Helgason, landfræðingur hjá Eflu á Egilsstöðum, sá um myndatöku og samsetningu.
