Nýtt íbúaapp Fjarðabyggðar er nú komið í loftið og aðgengilegt App Store og Google Play undir heitinu Fjarðabyggð, þjónustuapp. Með appinu geta íbúar nálgast helstu upplýsingar um þjónustu sveitarfélagsins á einfaldan og aðgengilegan hátt, hvar og hvenær sem er.
Í appinu er meðal annars hægt að finna upplýsingar um opnunartíma stofnana, ferðir strætó, sorphirðu og fleira sem nýtist íbúum í daglegu lífi. Markmið appsins er að auðvelda aðgengi að upplýsingum og gera íbúum kleift að nálgast þær á einum stað.
Appið er unnið af Markaðsdeildinni í samstarfi við Fjarðabyggð, en að baki verkefninu standa heimamennirnir Árni Már Valmundarson og Heimir Arnfinsson. Gert er ráð fyrir að appið verði áfram þróað í takt við þarfir sveitarfélagsins og íbúa þess.
„Það er ánægjulegt að sjá þetta nýja íbúaapp komið í loftið. Með því erum við að bæta upplýsingamiðlun sveitarfélagsins og gera íbúum auðveldara að nálgast helstu upplýsingar um þjónustu Fjarðabyggðar,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir.
Heimir og Árni segja markmiðið hafa frá upphafi verið að þróa lausn sem sé bæði einföld, hagnýt og aðgengileg.
„Við vildum búa til app sem safnar saman helstu upplýsingum á einn stað og gerir íbúum auðveldara að finna það sem þeir leita að. Það er mjög ánægjulegt að sjá appið nú komið í notkun og við hlökkum til að þróa það áfram í samstarfi við Fjarðabyggð,“ segja þeir.
Markaðsdeildin er austfirskt fyrirtæki sem vinnur að stafrænni þróunarvinnu af ýmsum toga og aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að þróa, hanna og innleiða hugbúnaðarlausnir fyrir snjallsíma og önnur stafræn kerfi. Fjarðabyggðarappið er annað appið sem fyrirtækið gefur út og eru fleiri smáforrit og önnur spennandi verkefni í undirbúningi.
Hlekkur á App store og Google play
