Samningur um þróun nýs íbúaapps fyrir Fjarðabyggð var undirritaður á dögunum og er stefnt að því að appið verði komið í loftið í byrjun apríl. Markmið appsins er að einfalda aðgengi íbúa að helstu upplýsingum um þjónustu sveitarfélagsins og gera þær aðgengilegar á einum stað.
Með appinu munu íbúar geta nálgast upplýsingar á borð við opnunartíma stofnana, ferðir strætó, sorphirðu og fleira. Verkefnið er unnið af Markaðsdeildinni fyrir Fjarðabyggð og verður þróað áfram í samstarfi við sveitarfélagið. Að baki lausninni standa heimamennirnir Árni Már Valmundarson og Heimir Arnfinnsson.
Markaðsdeildin er austfirskt fyrirtæki sem vinnur að stafrænni þróunarvinnu af ýmsum toga. Fyrirtækið aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að þróa, hanna og innleiða hugbúnaðarlausnir fyrir snjallsíma og önnur stafræn kerfi. Fjarðabyggðarappið er annað appið sem Markaðsdeildin gefur út og eru fleiri smáforrit og önnur áhugaverð verkefni í undirbúningi sem munu líta dagsins ljós á næstu mánuðum.
„Það skiptir miklu máli að íbúar hafi greiðan aðgang að skýrum og hagnýtum upplýsingum um þjónustu sveitarfélagsins, hvar og hvenær sem er. Með nýju íbúaappi erum við að stíga mikilvægt skref til að gera upplýsingagjöf einfaldari, aðgengilegri og betri fyrir alla íbúa Fjarðabyggðar,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir.
Heimir og Árni segja markmiðið með appinu vera að safna saman helstu upplýsingum á einn aðgengilegan stað og þróa lausnina áfram út frá raunverulegum þörfum íbúa.
„Við viljum að íbúar geti fundið helstu upplýsingar fljótt og auðveldlega, án þess að þurfa að leita á mörgum stöðum. Markmiðið er að appið verði einfalt í notkun, hagnýtt og nýtist fólki í daglegu lífi,“ segja þeir Heimir Arnfinsson og Árni Már Valmundarson hjá Markaðsdeildinni.
Þeir segja jafnframt að verkefnið sé hugsað til framtíðar og að áfram verði unnið að þróun appsins í samstarfi við Fjarðabyggð.
„Þetta er aðeins fyrsta skrefið. Við sjáum fyrir okkur að byggja appið áfram upp í góðu samstarfi við sveitarfélagið og íbúa, þannig að það þróist í takt við þarfir samfélagsins og verði enn öflugri upplýsingaveita með tímanum,“ segja þeir.
Með nýju íbúaappi vill Fjarðabyggð styrkja upplýsingamiðlun sveitarfélagsins og bæta aðgengi íbúa að daglegri þjónustu með einföldum og aðgengilegum hætti.
