Fara í efni
12.10.2026 Fréttir, Íþróttir

Nýtt loftræstikerfi mun hita upp Fjarðabyggðarhöllina

Deildu

Jóna Árný Þórðardóttir undirritaði á dögunum verksamning fyrir hönd Fjarðabyggðar við Magnús Hilmar Helgason, framkvæmdastjóra Launafls, um uppsetningu loftræstikerfis í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Nýja kerfið mun sjá um upphitun og loftskipti og bæta aðstæður til íþróttaiðkunar í höllinni.

Mikill kuldi hefur verið í höllinni þegar kalt er í veðri og hefur hún stundum verið kölluð „klakahöllin“ vegna þess. Með nýja kerfinu er stefnt að því að það viðurnefni heyri sögunni til og að iðkendur geti æft við betri aðstæður yfir vetrarmánuðina.

„Það hefur lengi verið kalt í höllinni yfir vetrarmánuðina og því er ánægjulegt að nú sé að verða til lausn á þeim vanda. Með nýja kerfinu verða aðstæður betri fyrir alla sem nýta höllina til æfinga og íþróttaiðkunar,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir.

Framkvæmdin felur í sér uppsetningu tveggja loftræstikerfa sem vinna saman að upphitun hallarinnar. Aðalkerfið sér jafnframt um loftskipti og nýtir varma úr loftinu sem fer út til að hita ferskt loft sem kemur inn. Minni viðbygging við norðausturhorn hallarinnar mun hýsa hluta búnaðarins.

Tvö tilboð bárust í verkið en kostnaðaráætlun var 100 milljónir króna. Tilboð Launafls hljóðaði upp á um 92,4 milljónir króna með virðisaukaskatti, eða 7,6% undir kostnaðaráætlun. Tilboð Borgar byggingarlausna var um 126,4 milljónir króna, eða 26,4% yfir kostnaðaráætlun.

„Við hjá Launafli hlökkum til að takast á við þetta verkefni. Nýja kerfið mun bæði sjá um loftskipti og upphitun og bæta þannig aðstæður í höllinni. Við munum vinna í nánu samstarfi við umsjónarmenn hennar til að framkvæmdirnar gangi sem best samhliða íþróttastarfinu,“ segir Magnús Hilmar Helgason, framkvæmdastjóri Launafls.

Áætlað er að loftræstibúnaðurinn verði afhentur á verkstað 17. desember og að verkinu verði að fullu lokið í ársbyrjun 2027.

Gert er ráð fyrir að höllin verði í notkun meðan á framkvæmdum stendur. Vinnusvæði verða afmörkuð og lokanir einstakra svæða samræmdar við umsjónarmenn hallarinnar.