Fara í efni
16.02.2026 Fréttir, Menning

Nýtt met slegið í Upptaktinum á Austurlandi

Deildu

 

Helgina 7. - 8. febrúar fór fram Upptakturinn á Austurlandi í sjöunda sinn. Þátttakan hefur aukist stöðugt frá árinu 2020 og voru í ár 25 þátttakendur. Tónsmiðjan fór fram í Studio Silo á Stöðvarfirði. Hún er opin ungmennum í 5. - 10. bekk og gefur þátttakendum tækifæri til þess að þróa tónlistar- og lagahugmyndir sínar í skapandi og hvetjandi umhverfi.

 

 

Leiðbeinendur helgarinnar voru þau Hrafnkell Örn (Keli), Steinunn Jónsdóttir, Jón Hilmar og Jónatan Emil. Þau sáu um fræðslu, hópefli ásamt því að veita þátttakendum stuðning og innblástur í vinnu við lögin sín. Með þátttöku í Upptaktinum fengu ungmennin ekki aðeins tækifæri til að vinna að eigin lögum heldur einnig að styðja hvert annað í skapandi ferli með jafningjastuðningi. Þátttakendur voru dugleg að hjálpa hverju öðru og mátti sjá góð og skapandi vináttubönd myndast innan hópsins.

 

Eftir helgina höfðu verið tekin upp 11 lög í stúdíóinu undir leiðsögn Vinny Wood sem verða síðan send til dómnefndar Upptaktsins í Reykjavík fyrir 22. apríl. 

 

Tónsmiðjan var einstaklega vel heppnuð og er ljóst að næsta kynslóð tónlistarmanna á Austurlandi á sér bjarta framtíð í tónlist. Upptakturinn er hluti af Barnamenningarhátíð og veitir ungum tónskáldum vettvang til að láta ljós sitt skína á stórum sviðum.