Fara í efni
30.12.2025 Oddsskarð

Oddsskarð: Undirbúningur fyrir opnun á næstu dögum

Deildu

Unnið er að undirbúningi fyrir opnun skíðasvæðisins í Oddsskarði. Aðstæður eru ágætar, en snjóalög eru þó lítil í fjallinu eins og staðan er núna.

Starfsfólk hefur verið að vinna að nauðsynlegum undirbúningi á svæðinu og vonir standa til að hægt verði að opna á allra næstu dögum, ef aðstæður haldast áfram hagstæðar.

Nánari upplýsingar um opnunartíma og þjónustu verða birtar um leið og staðfesting liggur fyrir.