Fara í efni
09.09.2026 Fréttir, Menning

Öflugt sumar hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar

Deildu

Fjölbreytt starf fór fram hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar í menningar-, lista- og safnastarfi sumarið 2026. Gestir skiptu þúsundum, yfir 30 viðburðir voru haldnir á Innsævi og börn, ungmenni, listafólk og íbúar tóku þátt í skapandi verkefnum víða um sveitarfélagið.

Menningarstofa stóð fyrir sýningum, tónleikum, smiðjum og samfélagsverkefnum í samstarfi við listafólk, félagasamtök, skóla og menningarstofnanir. Sex ungmenni tóku þátt í skapandi sumarstörfum og um 40 börn sóttu listasmiðjur sem haldnar voru í fjórum byggðarkjörnum.

Listahátíð Fjarðabyggðar, Innsævi, fór fram í júní með myndlist, tónlist, gjörningum, vinnustofum og fjölskylduviðburðum. Meðal viðburða voru tilnefning listamanns Fjarðabyggðar, tónleikar flautuleikarans Stefáns Ragnars Höskuldssonar, sýningar í Gamla skóla á Eskifirði og á Reyðarfirði og ungmennatónlistarhátíðin glott.fest í Neskaupstað. 

Magnús Pálsson, listamaður Fjarðabyggðar 2026–2028, sitjandi við hlið Jónu Árnýjar Þórðardóttur bæjarstjóra í Gamla skóla á Eskifirði.
Magnús Pálsson, listamaður fjarðabyggðar 2026-2028 ásamt Jónu Árný, bæjarstjóra
Stefán Ragnar Höskuldsson flautuleikari leikur á flautu í Eskifjarðarkirkju.
Stefáns Ragnars Höskuldsson, flautuleikari

Öflugt sýningarstarf fór einnig fram í Þórsmörk í Neskaupstað. Fimm sýningar hafa verið settar upp þar það sem af er ári og 19 listamenn dvelja í Þórsmörk á árinu. Listamannadvalir hafa jafnframt verið í Jensenshúsi á Eskifirði.

Gestir safnanna skiptu þúsundum

Sumaropnun safnanna spannaði 92 daga. Endanlegar tölur fyrir sumaropnunina út ágústmánuð, að meðtöldum bókuðum hópum og þeim dögum sem vantaði í fyrri samantekt, sýna 8.040 taldar heimsóknir á sýningarhús Fjarðabyggðar. Þar af voru 4.511 heimsóknir á Frakka á Íslandsmiðum, 1.455 á Íslenska stríðsárasafnið, 1.310 í Safnahúsið í Neskaupstað og 764 á Sjóminjasafn Austurlands.

Gert er ráð fyrir að um 1.000 gestir til viðbótar heimsæki Frakka á Íslandsmiðum í september. Í heildina má því gera ráð fyrir að taldir gestir á sýningarhúsin verði um 9.000 þegar sumaropnun lýkur.

Þessar tölur ná ekki yfir komur í Randúlffssjóhús, þar sem ljósmyndasýning stendur yfir og áætlað er að um 5.000 manns sæki, né skólahópa sem komu í maí og júní, um 500 manns. Raunverulegur gestafjöldi safnanna í sumar er því áætlaður allt að 15.000 manns.

Samhliða sumaropnuninni var unnið að skráningu safngripa, varðveislu og undirbúningi nýs Stríðsárasafns. Yfir 1.000 munir úr safni Hinriks Steinssonar voru skráðir í gagnagrunninn Sarp og farið var yfir þúsundir skjala og hundruð ljósmynda úr safnkosti Stríðsárasafnsins.

Starfsemi Menningarstofu var jafnframt styrkt með ráðningu tveggja verkefnastjóra á sviði barnamenningar, tónlistar, myndlistar, sýninga og listamannadvala.

Á næstu dögum verður fjallað nánar um lista- og menningarstarf sumarsins og þau fjölmörgu verkefni sem unnið var að á söfnum Fjarðabyggðar.

/cdn/media/frakkar.jpg?v=1747242232
Franska safnið