Fara í efni
02.06.2026 Fréttir

Öldungaráð Fjarðabyggðar lýkur viðburðaríku starfsári

Deildu

Síðasti fundur starfsársins hjá öldungaráði Fjarðabyggðar fór fram þann 18. maí og markaði jafnframt lok þessa kjörtímabils. Fundurinn var því ákveðin tímamót í starfi ráðsins sem hefur á undanförnum tveimur árum byggt upp öflugan vettvang fyrir málefni eldra fólks í sveitarfélaginu.

Fulltrúar ráðsins vilja færa íbúum, samstarfsaðilum og öllum þeim sem komið hafa að verkefnum ráðsins kærar þakkir fyrir gott samstarf, þátttöku og stuðning á liðnu tímabili. Þótt kjörtímabili ljúki er ljóst að starf öldungaráðsins er rétt að ná flugi. Í byrjun árs 2025 var mótuð starfsáætlun sem hefur gengið vel að fylgja eftir og hefur starfsemin þróast með jákvæðum og markvissum hætti.

Fræðslustarf farið fram úr væntingum

Eitt af því sem hefur vakið hvað mesta ánægju eru mánaðarlegar fræðslur ráðsins sem hafa notið góðrar þátttöku og farið fram úr væntingum. Þar hafa íbúar fengið tækifæri til að fræðast um fjölbreytt málefni sem tengjast öldrun, heilsu, öryggi og lífsgæðum, auk þess sem samveran hefur skapað mikilvægan félagslegan vettvang.

Síðasta fræðslan fyrir sumarfrí fór einnig fram þann 18. maí þegar Sigurjón Rúnarson fjallaði um þær breytingar sem verða á líkamanum með hækkandi aldri, hvernig hægt er að vinna gegn afleiðingum þeirra og veitti einföld og hagnýt ráð til að draga úr algengum verkjum og bæta hreyfigetu. Þar var lögð áhersla á að rétt líkamsstaða, regluleg hreyfing og virkni séu mikilvægir þættir í heilbrigðri öldrun sem stuðli að sjálfstæði, betri lífsgæðum og geti fyrirbyggt félagslega einangrun.

Sigurjón Rúnarsson sjúkraþjálfari með fræðslu um líkamlega heilsu

Á kjörtímabilinu hefur öldungaráð staðið fyrir fjölbreyttum fræðslum og viðburðum, meðal annars:

Auk þess stóðNetvís  fyrir fræðslu fyrir eldra fólk á fimm stöðum í sveitarfélaginu í samstarfi við Landssamband eldri borgara .

Fjölbreytt verkefni og virk hagsmunagæsla

Á síðustu tveimur árum hefur öldungaráð unnið að fjölmörgum verkefnum sem snúa að þjónustu, húsnæðismálum, upplýsingagjöf, heilsu og aðbúnaði eldra fólks í Fjarðabyggð.

Meðal verkefna ráðsins má nefna:

  • Hvatningu til úrbóta á húsnæðum félaga eldra fólks
  • Umsögn um þarfagreiningu vegna húsnæðisuppbyggingar fyrir 60 ára og eldri
  • Umsögn um framtíð Stríðsárasafnsins
  • Fundi og kynningar frá fjölmörgum aðilum, meðal annars upplýsingafulltrúa Fjarðabyggðar vegna nýrrar heimasíðu sveitarfélagsins og stjórnanda íþrótta- og tómstundamála vegna breytinga á Janusarverkefninu
  • Gerð starfsreglna og starfsáætlunar ráðsins
  • Tillögu um að mála fjólubláan bekk  í hverjum bæjarkjarna til að vekja athygli á heilabilun
  • Kynningu á starfsemi og þjónustu Securitas
  • Kynningu á niðurstöðum formannafundar LEB 2025
  • Heimsóknir á hjúkrunarheimilin Uppsali og Hulduhlíð, dagdvöl eldra fólks í Breiðdal og félög eldra fólks á Fáskrúðsfirði og Eskifirði
  • Erindi til Heilbrigðisstofnunar Austurlands vegna vals á einstaklingum í varanlega búsetu á hjúkrunarheimili
  • Kynningu frá Janusi heilsueflingu
  • Fund með bæjarráði vegna húsnæðismála eldra fólks
  • Kynningu á starfsemi og hlutverki heimahjúkrunar
  • Kynningu á því sem fram fór á Degi öldrunar 2026
  • Fyrirspurn vegna verðlags á garðslætti hjá verktökum
  • Minnisblað vegna áhyggja af þróun læknis- og heilsugæsluþjónustu í bæjarkjörnum Fjarðabyggðar
  • Minnisblað vegna upplýsingagjafar til eldra fólks þar sem bent var á að stafrænar upplýsingar skili sér ekki alltaf til allra íbúa og hvatt til fjölbreyttari leiða í upplýsingamiðlun
  • Kynningu á fyrirhuguðu skipulagi námskeiða og frístunda- og tómstundastarfs næsta vetur fyrir eldra fólk
Ráðgjafi HSA með erindi um næringu og svefn

Vill aukna aðkomu allra byggðarkjarna

Á síðasta fundi ráðsins á þessu kjörtímabili samþykkti ráðið einnig að senda tillögu til bæjarráðs um að fjölga fulltrúum eldra fólks í ráðinu þannig að að minnsta kosti einn fulltrúi og einn til vara sitji frá hverjum bæjarkjarna sveitarfélagsins.

Að mati ráðsins er mikilvægt að sjónarmið og reynsla íbúa allra svæða fái notið sín við umfjöllun mála sem varða eldra fólk í sveitarfélaginu og að allir byggðarkjarnar eigi beina rödd við borðið.

Öldungaráð Fjarðabyggðar hvetur eldri íbúa til að fylgjast áfram með starfseminni og nýta sér fræðslur og viðburði þegar starf hefst að nýju í haust. Markmið ráðsins verður áfram að efla þátttöku eldri íbúa, skapa vettvang fyrir samtal og stuðla að auknum lífsgæðum í samfélaginu.

Ráðið kveður starfsárið með þakklæti og bjartsýni fyrir áframhaldandi öflugu starfi á komandi árum.