Nemendur frá leikskólanum Eyrarvöllum, Nesskóla og Verkmenntaskóla Austurlands komu saman á SÚN-vellinum mánudaginn 14. september og tóku þátt í Styrkleikunum. Með þátttökunni sýndu þeir fólki sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendum þess stuðning í verki.
Styrkleikarnir eru viðburður á vegum Krabbameinsfélagsins. Í Neskaupstað sameinuðust öll skólastig bæjarins um verkefnið og tóku nemendur þátt í boðhlaupi. Þeir skiptu sér í lið og hlupu fram og til baka þvert yfir völlinn með kefli.
Að hlaupinu loknu tóku þátttakendur höndum saman og mynduðu hjarta á miðjum vellinum. Hlynur Sveinsson tók ljósmynd af hjartanu og klippti saman myndband frá viðburðinum. Í frétt Nesskóla er honum og öllum öðrum sem komu að verkefninu þakkað fyrir framlagið.
Nánari upplýsingar má finna á vef Krabbameinsfélagsins um Styrkleikana. Þeim sem vilja leggja verkefninu lið er bent á styrktarreikning Krabbameinsfélags Austfjarða:
Kennitala: 551001-3340
Reikningsnúmer: 0166-26-201
Fréttin er unnin upp úr frétt á vef Nesskóla.
