Fara í efni
12.11.2024

Ölver Jakobsson Michelsen, forstöðumaður íþróttahússins á Fáskrúðsfirði lætur af störfum

Deildu

Í tilefni af starfslokum Ölla efndu samstarfsfólk hans og nemendur í grunnskólanum til kveðjuhátíðar 2. nóvember síðastliðin og færði Magnús Árni Gunnarsson, stjórnandi íþrótta- og frístundamála honum kveðjugjöf fyrir hönd sveitarfélagsins.

Ölli hefur alltaf haft hjarta fyrir börnunum og lagt sig fram um að skapa þeim jákvætt umhverfi. Á löngum ferli sínum hefur hann unnið sér virðingu og ást hjá bæði skólanum og ungmennahreyfingunni. Íþróttahúsið hefur jafnvel verið kallað "Ölvershöll" meðal heimamanna – nafnið eitt segir allt um áhrif hans á staðinn.

Við þökkum Ölla innilega fyrir ómetanlegt framlag hans og óskum honum alls hins besta í næsta kafla lífsins.