Fara í efni
03.02.2026 Menning, Fréttir, Tilkynningar

Opið fyrir umsóknir fyrir Menningarstyrki Fjarðabyggðar 2026

Deildu

Öllum er heimilt að sækja um í sjóðinn en verkefni verða að hafa skýra tengingu við Fjarðabyggð. Verkefni þurfa að fara fram í Fjarðabyggð, fela í sér kynningu á menningarstarfsemi í sveitafélaginu eða hafa umsjónarmenn eða listamenn sem eru búsettir í Fjarðabyggð. Úthlutunarreglur má nálgast hér að neðan. 

Ekki eru veittir styrkir til náms, reksturs eða viðhalds húsnæðis.

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars

Sótt er um rafrænt á vef Fjarðabyggðar í gegnum Íbúagátt. Eyðublað má finna undir: Umsóknir --> 07 Menningarmál --> Umsókn um styrk til menningarstarfsemi.

Úthlutað verður einu sinni á árinu 2026. Styrkir eru að upphæð 50.000 - 500.000 kr og ber umsækjendum að hafa það í huga við umsóknargerð. Allar umsóknir eru svo á skrá hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar og þrátt fyrir að umsóknir séu ekki gjaldgengar þá útilokar það ekki framtíðarsamstarf með Menningarstofu á annan máta.

Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Tinna Sigurðardóttir forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar á menningarstofa@fjardabyggd.is

 Úthlutunarreglur fyrir menningarstyrki