Fara í efni
10.06.2015 Fréttir

Opnunarhátíð á Stöðvarfirði

Deildu

Samkomuhúsið hefur á undanförnum vikum gengið í endurnýjun lífdaga. Húsið hefur verið málað að innan og utan og salarkynni þess löguð að starfsemi Salthússmarkaðarins og nýrri Gestastofu Fjarðabyggðar. Þá stendur til að mála það að utan á næstunni.

Salthússmarkaðurinn, er samstarfsvettvangur handverkssamfélagsins á Stöðvarfirði. Markaðurinn er einn sá stærsti sinnar tengundar á Austurlandi og verður því fangað á opnunarhátíðinni að hann hefur nú formlega göngu sína í nýju og glæsilegu húsnæði.

Gestastofa Fjarðabyggðar starfar samhliða Salthússmarkaðnum, með aðstöðu fyrir ferðamenn og almenna upplýsingagjöf. Ljósmyndasýningin, sem hefur einnig göngu sína á opnunarhátíðinni og helguð er dulúð Austfjarðarþokunnar, rammar síðan skemmtilega inn þá fjölþættu starfsemi sem fer nú fram í samkomuhúsinu.

Gestastofan verður viðbót við Upplýsingamiðstöð Fjarðabyggðar sem staðsett er í Brekkunni og ein af grunnstoðum í þróun Stöðvarfjarðar sem annað af tveimur anddyrum Fjarðabyggðar fyrir ferðamenn.

Þetta spennandi uppbyggingarstarf er liður í þróunarverkefni, sem hrundið var af stað af bæjarstjórn Fjarðabyggðar í nóvember sl. og starfshópur um sóknarfæri Stöðvarfjarðar hefur leitt í samstarfi við íbúa staðarins.

Samkomuhúisið verður í sumar opið alla daga vikunnar frá kl. 11:00 til 17:00.

Opnunarhátíðin hefst sem áður segir kl. 15:00 og eru allir velkomnir að koma við og taka þátt í gleðinni.

Sjá: Opnunarhátíð Stöðvarfirði.pdf