Aleksander Kropiwnicki, sendiherra Póllands á Íslandi, heimsótti Fjarðabyggð föstudaginn 25. september. Á fundi með fulltrúum sveitarfélagsins kynntist hann samfélaginu, atvinnulífinu og menningarstarfi í Fjarðabyggð.
Þórður Vilberg Guðmundsson, sviðsstjóri mannauðs- og umbótasviðs, tók á móti sendiherranum í fjarveru Jónu Árnýjar, bæjarstjóra. Þórður fór yfir byggðarkjarna Fjarðabyggðar, atvinnulíf og þjónustu sveitarfélagsins. Einnig ræddu þau stöðu íbúa af pólskum uppruna, menntamál og þátttöku fólks af ólíkum uppruna í samfélaginu.
Á fundinum voru einnig Kristinn Þór, bæjarfulltrúi, og Marc Alexander Fulchini, verkefnastjóri Menningarstofu Fjarðabyggðar. Marc kynnti starfsemi Menningarstofu ásamt Krzysztof Madejski, forstöðumanni Sköpunarmiðstöðvarinnar á Stöðvarfirði.
Sendiherrann fékk jafnframt kynningu á pólsku kvikmyndahátíðinni í Valhöll, sem verður haldin í sjötta sinn í ár. Í framhaldi af fundinum mun hann heimsækja fyrirtæki og hitta Pólverja sem búa í Fjarðabyggð.
