Fara í efni
09.06.2026 Fréttir, Menning

Rætt um framtíð lista og menningar í landsbyggðunum

Deildu

Fulltrúar menningarlífs, stjórnvalda, rannsókna og skapandi greina koma saman á Eskifirði fimmtudaginn 11. júní þegar ráðstefnan Skapandi Austurland fer fram í Gamla barnaskólanum. Þar verður sjónum beint að stöðu, tækifærum og framtíð lista og menningar í landsbyggðunum.

Ráðstefnan er haldin í samstarfi Austurbrúar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og Menningarstofu Fjarðabyggðar. Hún markar mikilvægan vettvang fyrir samtal um menningu sem samfélagslegt afl, skapandi atvinnugrein og þátt í byggðaþróun.

Á dagskrá eru erindi, umræður og vinnustofur þar sem meðal annars verður fjallað um nýja menningarstefnu Austurlands, rannsóknir á skapandi greinum, starfsumhverfi listafólks og uppbyggingu stoðkerfa utan höfuðborgarsvæðisins.

„Menningarstofa Fjarðabyggðar hefur frá upphafi lagt áherslu á að menning liggi í hjarta sveitarfélagsins og að menningarlíf á svæðinu sé mótað af fólkinu sem hér býr og spretti út frá ólíkum reynsluheimum þess. Ráðstefnan er mikilvægur hluti af þeirri sýn þar sem hún skapar vettvang til að staldra við, miðla þekkingu og velta fyrir sér hvernig listir og menning geta ekki aðeins þrifist heldur blómstrað á Austurlandi, styrkt samfélögin sem hér búa og skapað ný tengslanet fyrir listafólk á svæðinu,“ segir Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar og listrænn stjórnandi Innsævis.

Meðal gesta eru Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina hjá ráðuneytinu, fulltrúar Rannsóknaseturs skapandi greina, auk sérfræðinga og listafólks sem starfað hafa að uppbyggingu menningarlífs víða um land.

Arnar Sigurðsson hjá Austan mána mun meðal annars velta upp spurningum um tengsl menningar, nýsköpunar og verðmætasköpunar. Tinna Guðmundsdóttir myndlistarkona og menningarstýra fjallar um menningarlíf út frá hugmyndinni um vistkerfi þar sem tengsl fólks, stofnana og samfélaga skipta lykilmáli.

Þá verður ný menningarstefna Austurlands kynnt á ráðstefnunni. Stefnan er afrakstur víðtækrar vinnu og samtals um framtíð menningarlífs í fjórðungnum og mun marka leiðina á komandi árum.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og skráningu á Skapandi Austurlandi