Í ljósi aðstæðna er Seyðisfjörður viðkvæmur fyrir rigningu og Eskifjörður að einhverju leyti einnig. Spáð er uppsafnaðri úrkomu á Seyðisfirði um 50 mm á þeim tíma sem viðvörunin gildir. Byrjar möglega sem slydda fyrsta klukkutímann, en hlýnar síðan heldur, megnið af tímanum verður slydda í yfir 200 m hæð yfir sjávarmáli og snjókoma yfir 300 m. Hlýnar svo eftir hádegi á laugardag og fer snjólína þá væntanlega upp í 800-900 m.
15.01.2021
Rigningarspá aðfaranótt laugardags og fram eftir laugardegi
