Rithöfundalestin leggur af stað í dag, miðvikudaginn 25. nóvember, með ritlistarsmiðjum á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Fram á sunnudag ferðast höfundar um Austurland, lesa úr nýjum bókum og hitta lesendur. Í Fjarðabyggð verða bókahátíðir á Fáskrúðsfirði og í Neskaupstað og bókarkynning á Reyðarfirði. Höfundarnir heimsækja einnig skóla og dvalarheimili.
Börnin spreyta sig á sagnagerð
Fyrstu viðburðir Rithöfundalestarinnar eru á bókasafninu á Reyðarfirði kl. 15 og á bókasafninu á Fáskrúðsfirði kl. 17 í dag. Þar leiðir Bergrún Íris Sævarsdóttir rit- og myndhöfundur smiðjur þar sem þátttakendur prófa sig áfram með skapandi skrif og búa til sínar eigin sögupersónur í orðum og myndum. Persónurnar geta svo orðið kveikjan að nýjum sögum eftir að smiðjunni lýkur. Þátttaka er ókeypis og skráning fer fram á menningarstofa@fjardabyggd.is. Fjarðabyggð
Jólabækurnar kynntar á Fáskrúðsfirði og í Neskaupstað
Með í Rithöfundalestinni í ár eru Vilborg Davíðsdóttir, Illugi Jökulsson, Benný Sif Ísleifsdóttir, Skúli Björn Gunnarsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir. Fleiri höfundar bætast í hópinn á einstökum viðkomustöðum. Á bókahátíðunum gefst gestum færi á að heyra höfunda lesa úr jólabókunum, ræða við þá um bækurnar og kynnast verkum sem tengjast Austurlandi. Einnig verður hægt að kaupa bækur á staðnum og fá þær áritaðar.
Fyrri bókahátíðin í Fjarðabyggð verður í Franska safninu á Fáskrúðsfirði föstudaginn 27. nóvember kl. 20. Sú síðari verður í Dalahöllinni í Neskaupstað laugardaginn 28. nóvember kl. 14. Þar verður jólamarkaður frá kl. 12 til 16 og að auki upplestur fyrir börn og ungmenni kl. 13.
Síðar á laugardeginum, kl. 17, kynnir Leifur Reynisson bók sína Hernámsæskan í Íslenska stríðsárasafninu á Reyðarfirði. Aðgangur að kynningunni er ókeypis.
Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.
