Fara í efni
09.11.2026 Fréttir, Íþróttir og tómstundir, Reyðarfjörður

Rúmlega 300 ungmenni komu saman á Kuldabola

Deildu
Screenshot

Rúmlega 300 ungmenni í 8.–10. bekk tóku þátt í unglingahátíðinni Kuldabola sem haldin var í Fjarðabyggðarhöllinni og íþróttahúsinu á Reyðarfirði föstudaginn 6. nóvember. Hátíðin skapar vettvang fyrir ungmenni á Austurlandi til að hittast, kynnast og efla tengsl sín á milli þvert á sveitarfélagamörk.

Félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar standa að Kuldabola og bjóða félagsmiðstöðvum Múlaþings og Vopnafjarðar einnig til þátttöku. Mikil gleði og góð stemning einkenndu hátíðina þar sem ungmennin tóku þátt í fjölbreyttum smiðjum og skemmtu sér saman.

Þátttakendur fóru á milli smiðja og spreyttu sig meðal annars á göngufótbolta, padel, kubbi og Tarzan-leiknum. Einnig var boðið upp á smiðju frá Eyrinni og félagsmiðstöðvasmiðju.

Að smiðjunum loknum tók við pítsuveisla áður en kvöldinu lauk með balli þar sem DJ Óli Jóhann og Floni sáu um fjörið.

„Það er enginn Kuldaboli án ungmennanna sjálfra og við hefðum aldrei getað haldið svona stóran viðburð án alls þess góða fólks sem kom að honum. Við erum ótrúlega þakklátar fyrir alla hjálpina, samstöðuna og jákvæðnina,“ segja Eygló Hákonardóttir og Hrafnhildur Ásta Njálsdóttir, forstöðumenn frístundamála hjá Fjarðabyggð.