Fara í efni
16.12.2024 Fréttir

Rýmingarkort vegna ofanflóðahættu aðgengileg á kortasjá sveitarfélagsins

Deildu

Boðið var upp á opna kynningarfundi á kortunum dagana 3. til 5. desember. Þau eru nú aðgengileg á heimasíðum Fjarðabyggðar og Múlaþings undir flipanum "Skipulag" í kortasjá og þar undir valmöguleikanum "rýmingarsvæði".

Ein mikilvægasta breytingin frá fyrri kortum er að nú eru þau sett fram á stafrænan hátt. Komi til rýmingar er auðvelt að sjá á kortunum hvaða rýmingarreiti um ræðir auk þess sem litir reitanna breytast eftir því hvort rýming er í gangi eða henni lokið. Með notkun landupplýsingakerfa sveitarfélaganna uppfærast kortin auk þess um leið og breytingar verða á umhverfi áðurnefndra staða með nýjum loftmyndum sem reglulega eru uppfærðar á kortasjá. Þá einfaldar stafræn framsetning kortanna viðbragðsaðilum vinnu sína ef kemur til rýmingar.

Íbúar eru hvattir til fara inn á kortasjá sveitarfélagsins og kynna sér rýmingarkortin. Hægt er að skoða þau inná kortasjá Fjarðabyggðar með því að smella hér.