Fara í efni
05.11.2021 Fréttir

Rýmingarskiltum dreift í hús á Eskifirði og í Neskaupstað

Deildu

Á skiltinu eru leiðbeiningar um að hverju skuli huga við rýmingu, hvað sé mikilvægt að taka með komi til rýmingar, hver tekur ákvörðun um rýmingu, afléttingu hennar og fleiri hagnýtar upplýsingar.

Íbúar eru hvattir til að kynna sér þær upplýsingar sem fram koma á skiltinu og geyma það vel. Ef til rýmingar kemur á að setja skiltið í glugga eða á áberandi stað og gefa þannig lögreglu og hjálparsveitum þær upplýsingar og fullvissu um að hús hafi verið rýmt.

Hægt er að nálgast skiltið á vef almannavarna og þar má einnig nálgast það á ensku og pólsku.