Fjölbreytt námskeið fyrir starfsfólk skóla í Fjarðabyggð og Múlaþingi fóru fram dagana 10.–14. ágúst. Námskeiðin tókust vel, þátttaka var góð og starfsfólk nýtti vikuna til að sækja sér fræðslu, miðla reynslu og undirbúa komandi skólaár.
Boðið var upp á fjölbreytta fræðslu sem tengdist ólíkum þáttum skólastarfs. Meðal viðfangsefna voru uppeldi til ábyrgðar, PALS í lestri og stærðfræði, útinám, leiðsagnarnám, gervigreind og tækni í skólastarfi, hegðunarvandi og ofbeldi nemenda auk verklegra námskeiða í FAB Lab og á Hallormsstað.
Námskeiðin fóru fram á ýmsum stöðum í Fjarðabyggð og Múlaþingi og voru liður í samstarfi sveitarfélaganna um símenntun starfsfólks skóla. Góð mæting var á námskeiðin og sýndi þátttakan vel þann áhuga sem er meðal starfsfólks á áframhaldandi starfsþróun og öflugu skólastarfi.
Leiðsagnarnám í brennidepli
Leiðsagnarnám var meðal þeirra viðfangsefna sem fengu sérstakt vægi í fræðsluvikunni. John Morris, skólaþróunarstjóri hjá EMPOWER Learning Academy Trust í Bretlandi, leiddi tvö námskeið í Fjarðabyggð, annars vegar fyrir kennara og stuðningsfulltrúa og hins vegar fyrir stjórnendur og innleiðingarteymi.
John býr yfir áratuga reynslu af skólastarfi og skólaþróun. Hann starfaði um árabil sem skólastjóri og hefur unnið ötullega að umbótum í skólastarfi og stuðningi við kennara og skólastjórnendur. Árið 2014 var hann sæmdur OBE-orðunni fyrir framlag sitt til menntamála og árið 2025 hlaut hann verðlaun fyrir ævistarf á sviði menntunar.
John á jafnframt um 20 ára samstarf að baki við íslenskt skólasamfélag og hefur unnið náið með íslenskum kennurum og skólastjórnendum. Þar á meðal hefur hann átt í farsælu samstarfi við Nönnu Kristínu Christiansen, uppeldis- og menntunarfræðing, ráðgjafa og höfund bóka um leiðsagnarnám. Nanna hefur um árabil unnið að skólaþróun og miðlun þekkingar um leiðsagnarnám hér á landi. John hefur einnig tekið á móti íslenskum kennurum í námsheimsóknum í Bretlandi.
Fyrra námskeiðið, Leiðsagnarnám: að skilja, innleiða og festa í sessi, fór fram í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar fimmtudaginn 13. ágúst. Þar var lögð áhersla á að dýpka skilning þátttakenda á leiðsagnarnámi og hvernig nýta megi það markvisst til umbóta í námi og kennslu. Áhersla var á hagnýta nálgun og raunveruleg dæmi úr skólastofunni og þátttakendur kynntust aðferðum sem hafa reynst vel við innleiðingu leiðsagnarnáms.
Daginn eftir, föstudaginn 14. ágúst, hélt John námskeið á Reyðarfirði fyrir skólastjórnendur og innleiðingarteymi undir yfirskriftinni Leiðsagnarnám fyrir stjórnendur og innleiðingarteymi: Að leiða af öryggi og ná árangri.
Þar var sjónum beint að hlutverki stjórnenda og annarra leiðtoga í innleiðingu leiðsagnarnáms og hvernig skapa megi aðstæður þar sem umbætur verða hluti af daglegu skólastarfi. John miðlaði reynslu sinni af innleiðingu leiðsagnarnáms í grunnskólum og fjallaði meðal annars um leiðir til að efla námsmenningu og námsvitund og aðlaga kennslu að þörfum nemenda.
Vinnan heldur áfram í vetur
Fræðslunni lýkur ekki með námskeiðunum í ágúst. Vinna stjórnenda og innleiðingarteyma heldur áfram á skólaárinu með fjarfundum með John þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að fylgja innleiðingunni eftir, miðla reynslu og fá áframhaldandi stuðning við umbótastarfið.
Fræðsluvikan er mikilvægur vettvangur fyrir starfsfólk skólanna til að efla þekkingu sína, sækja nýjar hugmyndir og miðla reynslu. Jafnframt gefst starfsfólki úr skólum á Austurlandi tækifæri til að hittast og efla tengsl sín á milli áður en nýtt skólaár hefst.
