Fara í efni
18.02.2019 Fréttir

Samningur við RARIK um yfirtöku á götulýsingakerfi

Deildu

Samningurinn tók gildi þann 1. febrúar 2019. Frá þeirri dagsetningu eiga allar ábendingar varðandi götulýsingarkerfið að beinast til framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar í síma 470 9000, eftir lokun skiptiborðs fæst sambandi við bakvakt samkvæmt símsvara.

Skv. raforkulögum nr. 65/2003 fellur götulýsing ekki undir einkaleyfisstarfsemi dreififyrirtækja eins og RARIK og er ekki inn í tekjuheimild þeirra. Það hefur því bara verið tímaspursmál hvenær sveitarfélagið yfirtæki þessa starfsemi. Fjarðabyggð er vel í stakk búið til að taka við þessu verkefni og með því opnast tækifæri t.a.m. í nútímavæðingu með orkusparandi lýsingu.