Fara í efni
16.06.2026 Fréttir, Íþróttir

Samstarf um þjálfun í Janusarverkefninu heldur áfram

Deildu

Fjarðabyggð hefur undirritað samninga við KFA og Lyftingafélag Reyðarfjarðar um þjálfun í Janusarverkefninu í Fjarðabyggð.

Verkefnið er fjölþætt heilsuefling fyrir 60 ára og eldri þar sem áhersla er lögð á reglulega hreyfingu, styrktar- og þolþjálfun, fræðslu og félagslega þátttöku. Markmiðið er að efla heilbrigði og lífsgæði þátttakenda, styrkja sjálfstæði þeirra og skapa góðar aðstæður til heilsueflingar til lengri tíma.

Frá upphafi hafa 197 þátttakendur tekið þátt í Janusarverkefninu í Fjarðabyggð, margir hverjir oftar en einu sinni. Í dag eru 71 virkir þátttakendur í verkefninu og kynjahlutfallið er nokkuð jafnt. 

Helga Rakel Arnardóttir, formaður KFA og Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Ánægja þátttakenda er mjög góð og fá þjálfarar verkefnisins háa einkunn. Í umsögnum þátttakenda kemur meðal annars fram að verkefnið sé „ómissandi“ og veiti „betri lífsgæði, líkamlega sem andlega“. Þá nefna þátttakendur einnig jákvæð áhrif á andlega líðan og félagslega þátttöku. 

Laufey Frímanndóttir frá Lyftingarfélagi Reyðarfjarðar og Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Niðurstöður verkefnisins sýna mælanlegan árangur til hins betra. Þátttakendur meta eigin heilsu betur eftir þátttöku og mælingar sýna jákvæða þróun, meðal annars í hreyfingu, styrk og heilsutengdum lífsgæðum.

„Janusarverkefnið hefur sýnt hversu miklu máli góð þjálfun, fagleg leiðsögn og hvetjandi umhverfi skipta fyrir heilsu og lífsgæði eldri íbúa. Það er ánægjulegt að halda áfram samstarfi við öflug íþróttafélög hér í Fjarðabyggð sem þekkja samfélagið vel og sinna verkefninu af metnaði,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar."

KFA og Lyftingafélag Reyðarfjarðar hafa sinnt þjálfun í Janusarverkefninu í Fjarðabyggð frá því í mars 2025 og segja samstarfið hafa gengið vel.

„Þetta frábæra verkefni hefur gengið vel og samstarfið við eldri borgara, Fjarðabyggð og Janus hefur heilt yfir verið mjög gott. Verkefnið fellur vel að þeim gildum sem KFA stendur fyrir og það er ánægjulegt að félagið geti lagt sitt af mörkum til að auka lífsgæði eldri borgara í Fjarðabyggð,“ segir Helga Rakel Arnardóttir, formaður KFA. 

„Þessi tími hefur verið skemmtilegur og það hefur verið gaman að hitta fólkið í tækjasalnum. Samstarfið hefur gengið vel við alla sem starfa að verkefninu og það er því ánægjulegt að fá að halda þessu samstarfi áfram,“ segir Laufey Frímanndóttir fyrir hönd Lyftingafélags Reyðarfjarðar. 

Með áframhaldandi samstarfi Fjarðabyggðar, KFA og Lyftingafélags Reyðarfjarðar verður áfram byggt á þeim góða grunni sem Janusarverkefnið hefur skapað í sveitarfélaginu. Verkefnið er mikilvægur liður í að efla heilsu, virkni og félagslega þátttöku eldri íbúa í Fjarðabyggð.