Fara í efni
13.02.2018 Fréttir

Samstarfsyfirlýsing um átak gegn heimilisofbeldi

Deildu

Í yfirlýsingunni felst að þann 1. mars nk. munu lögregla og félagsþjónusta á Austurlandi taka upp samstillt verklag í starfsemi sinni. Markmiðið er markvissari viðbrögð og úrræði gegn heimlisofbeldi og að veita þolendum og gerendum aðstoð og bæta stöðu barna, sem búa við ofbeldi á heimilum.

Fyrirmyndin er verklagið "Að halda glugganum opnum", sem er samstarfsverkefni lögreglu og félagsþjónustu á Suðurnesjum, sem miðar að því að bæta rannsóknir í málum er varða heimilisofbeldi, nýta betur úrræði um brottvísun af heimili og nálgunarbann og að koma fleiri málum í gegnum réttarvörslukerfið.

Verkefnið, sem er átaksverkefni gegn heimilisofbeldi, mun standa í eitt ár og árangur metinn að þeim tíma liðnum. Allt umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi er því komið undir sama verklag í heimilisofbeldismálum.