Sendikvinna Færeyja, Dr. Hanna í Horni, heimsótti Fjarðabyggð á dögunum á leið sinni til Færeyja með Norrænu.
Hanna kom við á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar þar sem Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri tók á móti henni. Jóna Árný kynnti fyrir henni sveitarfélagið, helstu atvinnuvegi þess og verkefni sem eru í gangi og fram undan.
Að kynningunni lokinni héldu þær til Neskaupstaðar þar sem þær skoðuðu framkvæmdir við snjóflóðavarnargarða ofan bæjarins. Þaðan lá leiðin út að Norðfjarðarvita þar sem þær nutu útsýnis yfir Norðfjörð og nágrenni.
