Miðvikudaginn 13. maí sl. fór fram síðasti fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar á þessu kjörtímabili, en gengið verður til sveitastjórnarkosninga laugardaginn 16. maí og í kjölfar þeirra mun ný bæjarstjórn taka við.
Dagskrá fundarins var hefðbundin og var fundurinn var að venju í beinni útsendingu og má nálgast upptöku af honum með því að smella hér: Bæjarstjórnarfundur nr. 415 - bein útsending
Á fundinum kvöddu tveir fráfarandi bæjarfulltrúar sem gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í komandi kosningum.
Jóhanna Sigfúsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kvaddi eftir að hafa setið sem aðalmaður í bæjarstjórn frá árinu 2022. Jóhanna hefur auk þess á kjörtímabilinu átt sæti í fjölskyldunefnd, auk þess sem hún sat í fræðslunefnd á kjörtímabilinu 2018 – 2022.
Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar, kvaddi eftir að hafa setið sem aðalmaður í bæjarstjórn frá árinu 2010, en hann hafði einnig tekið sæti sem varabæjarfulltrúi kjörtímabilið 2006 – 2010. Jón Björn hefur á tíma sínum sem kjörinn fulltrúi átt sæti í fjölmörgun nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins, allt frá því Fjarðabyggð varð fyrst til við sameiningu 1998.
Um leið og fráfarandi bæjarstjórn og bæjarfulltrúum er þökkuð fyrir sín störf á kjörtímabilinu, er þeim Jóhönnu og Jóni Birni sérstaklega þakkað fyrir þeirra framlag, og óskað velfarnaðar í þeim störfum sem þau taka sér fyrir hendur.
