Fara í efni
23.10.2026 Fréttir, Fólk í fréttum

Sigurður Skarphéðinsson ráðinn varaslökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar

Deildu

Sigurður Skarphéðinsson hefur verið ráðinn varaslökkviliðsstjóri Slökkviliðs Fjarðabyggðar og hefur störf mánudaginn 26. október. Hann hefur víðtæka reynslu af slökkviliðs- og stjórnunarstörfum og gegndi meðal annars starfi varaslökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Suðurnesja í 18 ár.

Á starfsferli sínum hefur Sigurður sinnt stjórnun slökkviliðs, skipulagningu viðbragða og fjölbreyttum verkefnum á sviði brunavarna og neyðarþjónustu.

Í nýju starfi mun Sigurður gegna hlutverki yfireldvarnareftirlitsmanns og hafa yfirumsjón með þjálfun og forvarnarfræðslu slökkviliðsins. Hann mun jafnframt taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun starfseminnar.

Ráðning Sigurðar er mikilvægur liður í að efla stjórnendateymi Slökkviliðs Fjarðabyggðar og styrkja faglegt starf þess. Víðtæk reynsla hans og þekking munu nýtast vel í þeim fjölbreyttu verkefnum sem slökkviliðið sinnir á víðfeðmu starfssvæði sínu.

Við bjóðum Sigurð velkominn til starfa hjá Fjarðabyggð.