Fara í efni
09.03.2016 Fréttir

Skipan forvarnar- og öryggisnefndar

Deildu

Hlutverk nefndarinnar er að stuðla að efldum forvörnum til að auka öryggi, fækka slysum og tjónum Nefndin taki reglubundið fyrir á fundum sínum skipulag öryggis- og forvarnarmála, áhættur, forvarnir, tjónayfirlit, ferlamál og tilkynningar, þjónustustig og samskipti vátryggingartaka og vátryggjanda, bótaúrskurði og nýmæli í tryggingarmálum auk verkefna sem útlistuð eru í forvarnarsamstarfi Fjarðabyggðar og VÍS í viðauka I í samningi Fjarðabyggðar og VÍS um tryggingar.

Nefndin mun funda reglubundið eða að lágmarki annan hvern mánuð í upphafi verkefnisins. Nefndin skal skila á hálfsársfresti greinargerð til bæjarráðs um framvindu forvarnarmála auk þess sem fulltrúi VÍS komi árlega á fund bæjarráðs og fari yfir stöðu mála ásamt því að uppfylla ákvæði viðauka I um forvarnarfræðslu til stjórnenda.

Nefndina skipa

  • Stjórnsýslu og þjónustusvið – forstöðumaður stjórnsýslusviðs
  • Fjölskyldusvið – félagsmálastjóri
  • Grunnskólar – skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar
  • Leikskólar – skólastjóri Leikskólans Kærabæjar
  • Slökkvilið – slökkviliðsstjóri
  • Framkvæmda-, umhverfis- og veitusvið – sviðsstjóri FUV
  • Fulltrúi frá VÍS situr fundi nefndarinnar