Fara í efni
10.12.2021 Fréttir

Skólahald hefst að nýju mánudaginn 13. desember

Deildu

Eskifjarðarskóli: Ekkert smit greindist í gær sem tengist skólanum. Skólastarf hefst að nýju í Eskifjarðarskóla á mánudagsmorgun 13. desember.

Grunnskóli Reyðarfjarðar: Eitt smit greindist í grunnskóla Reyðarfjarðar. Smitið er hjá nemanda í 6. bekk Grunnskóla Reyðarfjarðar og nemendur í 6. bekk þurfa því að fara í sóttkví og nemendur í 5. bekk í smitgát. Skólastarf hefst að nýju í Grunnskóla Reyðarfjarðar á mánudagsmorgun 13. desember.

Leikskólinn Lyngholt: Ekkert smit greindist í gær sem tengist skólanum. Skólastarf hefst því að nýju á mánudagsmorgun 13. desember. Rétt er þó að taka fram að fjarvera starfsmanna vegna einangrunar eða sóttkvíar getur haft áhrif á starfsemi leikskólans næstu viku.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Athugið að þau börn eða starfsmenn úr þessum skólum sem núna eru í sóttkví þurfa að bíða eftir neikvæðri niðurstöðu úr sýnatöku um helgina áður en þau mæta í skólann.

Athugið að vegna veðurs og óvissu með flugferðir á laugardag mun sýnatakan fara fram á sunnudag. Sýnataka verður í boði á heilsugæslunni á Reyðarfirði á sunnudag frá kl. 9 – 10:30 og á Egilsstöðum frá 12:00 – 13:30. Boð kemur til allra þeirra sem eiga að mæta í gegnum Heilsuveru.