Um 660 nemendur hefja nám í grunnskólum Fjarðabyggðar á næstu dögum þegar skólastarf vetrarins 2026–2027 fer af stað. Nemendur og foreldrar mæta til viðtala eða kynningarfunda mánudaginn 24. ágúst og kennsla samkvæmt stundaskrá hefst þriðjudaginn 25. ágúst.
Fyrirkomulag fyrsta skóladags er mismunandi milli skóla og hafa foreldrar og nemendur fengið nánari upplýsingar frá sínum skóla í tölvupósti.
Innritun í grunnskóla fer fram í gegnum island.is og þar er einnig sótt um flutning nemenda milli grunnskóla.
Frístund í boði fyrir nemendur í 1.–4. bekk
Miðað er við að frístund verði í boði fyrir nemendur í 1.–4. bekk alla nemendadaga samkvæmt skóladagatali, þar á meðal á foreldra- og samtalsdögum. Þjónustan er þó háð því að takist að manna störf.
Skráning í frístund er með mismunandi hætti eftir skólum. Við Eskifjarðarskóla, Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla fer skráning fram með tölvupósti til viðkomandi skóla. Við Nesskóla og Grunnskóla Reyðarfjarðar fer skráning fram á vala.is.
Sameiginlegar dagsetningar skólaársins
Skóladagatöl má finna á vefjum grunnskólanna. Þar má meðal annars sjá nokkrar sameiginlegar dagsetningar skólaársins.
Vetrafrí verða í öllum skólum dagana 28.–30. október, 23. apríl og 7. maí. Sameiginlegur starfsdagur verður 25. september og síðasti kennsludagur fyrir jólaleyfi verður 18. desember.
Sameiginlegur íþróttadagur eldri nemenda verður 5. maí og síðasti skóladagur skólaársins verður 8. júní.
Aðrir viðburðir, svo sem árshátíðir, foreldraviðtöl, útivistardagar, þemadagar og starfsdagar, eru á mismunandi tímum eftir skólum í samræmi við þarfir og hefðir á hverjum stað.
Leik- og tónlistarskólar einnig að hefja vetrarstarfið
Leikskólar Fjarðabyggðar hafa allir hafið starf að nýju eftir sumarlokun og eru þar nú um 280 börn.
Kennsla í Tónlistarskóla Fjarðabyggðar hefst miðvikudaginn 26. ágúst. Áður verða nemendur boðaðir í viðtöl og eru nánari upplýsingar á vef Tónlistarskólans og í tölvupósti til nemenda.
