Um síðustu helgi opnaði allsérstök sýning eftir Kötu Jóhanness í listamannasetrinu Þórsmörk í Neskaupstað. Sýningin ber heitið „Skraut á lofti – hnoss, flúr og faldir hlekkir“ og laðaði að yfir 25 gesti.
Í sýningunni má finna handverkslist sem Kata vann í febrúarmánuði í listamannadvöl í húsinu. Andrúmsloftið var líflegt þar sem gestir veltu fyrir sér mörkunum á milli skrauts og handverks. Skreytingar sem tengja ekki aðeins saman ólíkar kynslóðir en varðveita einnig minningar. Gestir sýningarinnar lögðu einnig sitt af mörkum, en hjón nokkur sýndu Kötu og öðrum viðstöddum útskorna muni frá 18. öld sem hafa erfst innan fjölskyldunnar í um 200 ár. Það var virkilega skemmtilegt að sjá og mikið fagnaðarefni að íbúar leggi sitt af mörkum við varðveislu menningararfsins. Við viljum þakka Kötu innilega fyrir vel nýtta og upplýsandi rannsóknardvöl í Þórsmörk!

„Skraut á lofti – hnoss, flúr og faldir hlekkir“ verður opin til 28. apríl og eru allir velkomnir að heimsækja Þórsmörk á opnunartíma, mánudaga til föstudaga frá 13:00–17:00.
Það hefur verið annasamur tími hjá Menningarstofu í Þórsmörk en Logi Einarsson menningarmálaráðherra heimsótti húsið og skjalasafnið í Lúðvíkshúsi í liðinni viku. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir forstöðumaður tók þar á móti honum og fylgdarliði, og kynnti fyrir þeim fjölbreytta starfsemi Menningarstofu.

Sýningin – sem var þá enn í vinnslu – vakti mikla lukku og var ómetanleg uppspretta samtals um mikilvægi þess að innlendum listamönnum sé gert kleift að sækja innblástur innanlands. Þórsmörk er með sérstöðu á landsvísu þar sem listamannadvölin er gjaldfrjáls. Hún gerir því listafólki kleift að stunda framsækna listsköpun innanlands án gríðarlegs gisti- og aðstöðukostnaðar. Enn sem komið er, hefur ekki verið komið á legg ferðastyrkjakerfi fyrir listafólk til að sækja innlend tækifæri á borð við Þórsmörk.

Í viðtali sem kom út í síðasta tölublaði Austurgluggans sagði Kata:
„Það sem heillaði mig sérstaklega, við að vera fyrir austan að vinna þetta, er að amma mín er ættuð úr Fáskrúðsfirði og þess vegna hef ég mikinn áhuga á svæðinu í heild. Svo er Þórsmörk frábær staður til að vinna á og góðar tengingar hér á milli bæjanna sem allt nýtist mér vel ... Langamma mín fæddist á Fáskrúðsfirði og var hér um hríð áður en þau fluttu í Hafnarfjörð. Þannig að ég hafði engar tengingar lengur á svæðið, enda langt síðan þetta var, sem mér hefur alltaf fundist leiðinlegt, og vildi ég bæta þar úr, sem ég hef gert að hluta eftir að ég kom. “

