Eldurinn kviknaði í fimm gámaeiningum, sem hýsa eldhús og mötuneyti, að því er fram kemur í frétt á visir.is um málið.
Af ummerkjum að dæma hafði eldur kraumað um nokkurn tíma áður en slökkvilið bar að garði. Lögð var áhersla á að verja íbúðareiningar sem tengjast mötuneytinu og tókst að forða þeim frá meiriháttar skemmdum.
Um það bil 40 mínútur tók að ráða niðurlögum eldsins. Eldsupptök eru ókunn, en ekki leikur grunur á íkveikju að manna völdum. Tilkynning um eldinn barst um kl. 22:30 í gærkvöldi.
Til stóð að flytja vinnubúðirnar sem samanstanda af samtengdum gamaeiningum og yfirgáfu starfsmenn búðirnar fyrir nokkrum dögum.
Sjá frétt á visir.is