Áhersla er lögð á sjómokstur á þjónustuleið eitt og tvö, þegar því er lokið er hafinn snjómokstur á þjónustuleið þrjú.
Tilhögun snjómoksturs er eftirfarandi:
- Þjónustuleið 1 – Aðalgötur, strætóleiðir og stofngötur
- Þjónustuleið 2 – Aðrar tengibrautir og safngötur, með minni umferð, eru þjónustaðar þegar mokstri lýkur í þjónustuflokki eitt.
- Þjónustuleið 3 – Húsagötur og fáfarnar safngötur er þjónustuðar þegar mokstri lýkur í þjónustuflokki eitt og tvö 👉
Einnig eru það vinsamleg tilmæli til íbúa að þeir leggi bílum sínum ekki þannig að það tefji fyrir snjómokstri.👉
Snjómoksturinn er í sífeldri skoðun á framkvæmdasviði Fjarðabyggðar og vel fylgst með stöðu mála.👉
Íbúar eru beðnir um að sýna verktökum sem sinna snjómokstri tillitsemi og þolinmæði meðan sú vinna stendur yfir.
Fyrir frekari upplýsingar um tilhögun snjómoksturs og hálkueyðingar í Fjarðabyggð er bent á verklagsreglur sem finna má á heimasíðunni með því að smella hér. Kort sem sýna þjónustuflokka gatna í hverjum byggðakjarna má svo finna hér.
Við minnum á að hægt er að koma ábendingum varðandi snjómokstur á framfæri inná ábendingagátt Fjarðabyggðar