Þótt söfn Fjarðabyggðar séu lokuð gestum er víða nóg að gera innan dyra. Nýtt sýningarhúsnæði, betri lýsing og skráning þúsunda safngripa eru meðal verkefna haustsins.

Ný sýning tekur á sig mynd
Framkvæmdir við nýtt sýningarhúsnæði Íslenska stríðsárasafnsins eru í fullum gangi. Launafl hefur lokið vinnu við fyrsta braggann í bili og vinnur nú að undirbúningi fyrir bílabraggann.
Samhliða framkvæmdunum er unnið að handriti nýrrar sýningar og áframhaldandi skráningu safngripa. Þar er af nógu að taka, enda telja munirnir þúsundum og fjölbreytnin er eftir því.
Nýtt ljós á Sjóminjasafnið

Á Sjóminjasafninu stendur til að skipta út lýsingunni og setja upp kastarabrautir og kastara. Með breytingunum verður hægt að draga safngripina betur fram og bæta upplifun gesta.
Nýja lýsingin mun jafnframt stuðla að betri varðveislu gripanna og lækka rafmagnskostnað. Það er því ýmislegt unnið með því að varpa nýju ljósi á söguna.
Unnið að varðveislu Safnahússins
Í Safnahúsinu í Neskaupstað hefur verið gripið til aðgerða til að tryggja burðarþol hússins fyrir veturinn. Beðið er eftir lokaskýrslu um ástand þess, en búist er við henni á næstu dögum. Í kjölfarið verður tekin ákvörðun um viðhaldsaðgerðir.

Sagan nær til fleira fólks
Menningarstofa Fjarðabyggðar og sveitarfélagið vilja gera söfnin sýnilegri og vekja áhuga bæði heimafólks og gesta á sögu og menningararfi svæðisins.
Liður í því er að efla samfélagsmiðla safnanna, sýna meira af vinnunni á bak við tjöldin og skapa samtal um söguna sem þau varðveita.
Við hvetjum áhugasöm til að fylgja Söfnum Fjarðabyggðar á Facebook og fá innsýn í starfið á bak við tjöldin. Safnastarfið heldur áfram þótt dyrnar séu lokaðar.