Fara í efni
13.11.2026 Fréttir, Menning og mannlíf, Skólar og fræðsla

Söngvavor hlýtur Íslensku menntaverðlaunin 2026!

Deildu
Barnakór syngur á sviði Eskifjarðarkirkju. Karitas Harpa Davíðsdóttir stjórnar kórnum. Setið er í hverju sæti og áhorfendur hlusta

Íslensku menntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn 10. nóvember. Verðlaunin eru veitt fyrir metnaðarfullt og vandað skóla- og frístundastarf og framúrskarandi umbætur á sviði menntunar.

Söngvavor hófst í Reykjavík árið 2010 en hefur á undanförnum árum breiðst út um landið. Markmið verkefnisins er að efla sönggleði, sjálfstraust, málþroska og menningarþátttöku elstu barna leikskólanna. Á hverju ári kynnast börnin tónlist íslensks tónskálds, læra lög þess og vinna með textana í fjölbreyttu leikskólastarfi. Verkefninu lýkur með uppskerutónleikum þar sem börnin stíga á svið og flytja lögin.

Söngvavor á Austurlandi

Menningarstofa Fjarðabyggðar leiddi innleiðingu Söngvavors á Austurlandi vorið 2024 í samstarfi við alla leikskóla Fjarðabyggðar og leikskólana Tjarnarskóg og Hádegishöfða í Múlaþingi. Síðan hefur samstarfið þróast og vorið 2026 bættist Tónlistarskólinn á Egilsstöðum við verkefnið.

Árlega eru haldnir tvennir uppskerutónleikar á Austurlandi, annars vegar í Eskifjarðarkirkju og hins vegar í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Árið 2025 var tónlist Braga Valdimars Skúlasonar í forgrunni og vorið 2026 kynntust börnin lögum Dr. Gunna. Næsta vor verður tónlist Olgu Guðrúnar Árnadóttur í aðalhlutverki.

Söngvavor hefur vaxið hratt á landsvísu. Vorið 2026 tóku 2.746 leikskólabörn og um 300 hljóðfæranemendur þátt í verkefninu, alls frá 140 leikskólum og 15 tónlistarskólum.

Fjarðabyggð óskar öllum sem komið hafa að Söngvavori innilega til hamingju með viðurkenninguna, ekki síst leikskólum, tónlistarskólum, kennurum, nemendum og Menningarstofu Fjarðabyggðar.