Mánudag og þriðjudag fóru fram stuttir en líklega krúttlegustu tónleikar Austurlands annarsvegar í Sláturhúsinu og hinsvegar í kirkjunni á Eskifirði. Fram komu elstu árgangar leikskólabarna af leikskólunum Tjarnarskógi og Hádegishöfða í Múlaþingi og úr öllum leikskólum Fjarðabyggðar.

Börnin sungu lög eftir Dr. Gunna og gerðu það afar fallega og af mikilli innlifun. Lögin sem þau fluttu voru Prumpufólkið, Góðan daginn sól, Glaðasti hundur í heimi og hina svokölluðu Dr. Syrpu.
,,Þetta er núna annað árið sem við leiðum verkefnið á Austurlandi og hefur okkur tekist að stækka það aðeins milli ára. Markmiðið er auðvitað að geta stækkað það og þróað með hverju árinu sem við tökum þátt. Í ár fengum við nemendur og kennara úr Tónlistarskóla Egilsstaða og í Fellabæ til liðs við okkur í Múlaþingi sem spiluðu undir í Sláturhúsinu. Það var ótrúlega skemmtilegt að hafa lifandi tónlist undir og mikil upplifun sérstaklega fyrir krakkana að syngja við undirleik hljómsveitar. Vonandi náum við hljómsveit líka í Fjarðabyggð á næsta ári.” Segir verkefnastjórinn Karitas Harpa sem leiddi verkefnið í Múlaþingi og Fjarðabyggð fyrir hönd Menningarstofu Fjarðabyggðar.

Viðburðurinn bar yfirskriftina Einn fyrir alla, allir fyrir einn og er hluti af verkefninu Söngvavor sem teygir anga sína um allt land núna.

Kynnir og kórstjóri á tónleikunum var Karitas Harpa Davíðsdóttir. Útsetningar voru í höndum Haraldar Vignis Sveinbjörnssonar.
Börnin sem og starfsfólk leikskólanna eiga mikið lof skilið fyrir þá vinnu sem býr að baki svona tónleikum.
