Fara í efni
20.04.2020 Fréttir

Starf í skólum Fjarðabyggðar hefur gengið vel

Deildu

Viljum við sérstaklega minna á eftirfarandi:

  • Það er mikilvægt að forráðamenn barna dragi úr fjölda einstaklinga í tengslaneti barna sinna utan skólatíma.
  • Skólafélagar sem ekki eru í sama hópi (árgangi) í skólastarfinu eiga ekki að vera saman utan skóla.
  • Við erum ekki að heimsækja félaga og vini frá öðrum bæjum í nágrenni okkar

Rétt er að taka fram að í skólum Fjarðabyggðar hefur gengið vel að fylgja fyrirmælum almannavarna um aðskilnað hópa og fjarlægðarmörk.

Höfum það hugfast að samkomubann er í gildi til 4. maí og er mikilvægt að við sofnum ekki á verðinum, þetta er að hafast hjá okkur.