Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir í Fjarðabyggð geta sótt um styrk til menningarstarfs eða einstakra menningarverkefna.
Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Fjarðabyggð með fastri búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Fjarðabyggð eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi í Fjarðabyggð.
Ekki eru veittir styrkir til náms, reksturs eða viðhalds húsnæðis.
Umsóknarfrestur er til 17. febrúar nk.
Umsóknum merktum "Menningarstyrkir 2016" skal skilað á bæjarskrifstofuna, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 470 9000.
Hér er hægt að nálgast úthlutunarreglur og eyðublað.