Fara í efni
12.01.2022

Styrkir til menningarmála 2022

Deildu

Öllum er heimilt að sækja um í sjóðinn en verkefni verður að hafa skýra tengingu við Fjarðabyggð. Gjaldgeng eru verkefni sem fara fram í Fjarðabyggð, fela í sér kynningu á menningarstarfsemi í Fjarðabyggð eða ef umsjónarmenn eða listamenn hafa búsetu í Fjarðabyggð.

Ekki eru veittir styrkir til náms, reksturs eða viðhalds húsnæðis.

Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar.

Sótt er um rafrænt hér á vef Fjarðabyggðar í gegnum Íbúagátt. Eyðublað má finna undir: Umsóknir - Umsókn um styrk til menningarstarfssemi.

Úthlutunarreglur má nálgast á heimasíðu Fjarðabyggðar

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Jóhannsson, forstöðumaður Menningarstofu í síma 894 4321 og johann.johannsson@fjardabyggd.is