Styrkurinn, sem var greiddur til Fjarðabyggðar á síðasta ári, nam um 20 milljónum íslenskra króna á þáverandi gengi. Styrkurinn er annars vegar nýttur í að vakta flóru og fánu í fólksvöngum Fjarðabyggðar og hins vegar til að varðveita menningarminjar sem felst í að endurheimta gamlar hleðslur í stígum á svæðinu. Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri Fjarðabyggðar tók formlega við styrknum fyrir hönd sveitarfélagsins: "Þessi styrkur er sveitarfélaginu mikilvægur því fyrir tilstilli hans er hægt að vinna að verkefnum á sviði náttúruverndar og minjavörslu á þessum mikilfenglegu svæðum í Fjarðabyggð. Við erum þakklát Alcoa Foundation að veita okkur tækifæri til að sinna jafn vel og raun ber vitni þessum verkefnum."
Einar Þorsteinsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls afhenti styrkinn fyrir hönd Alcoa Foundation og hann sagði samfélagslega mikilvægt að öflugt fyrirtæki á borð við Alcoa taki virkan þátt í að byggja upp samfélagið á Austurlandi: "Alcoa Foundation er stór sjóður sem við njótum þess að geta sótt styrki í hér fyrir nærsamfélagið. Sjóðurinn styrkir verkefni á sviði umhverfisverndar og menntunar og verkefnið sem Fjarðabyggð sótti um er frábært dæmi um verkefni þar sem stuðlað er að verndun náttúru hér á svæðinu.