Menningarstofa Fjarðabyggðar heldur úti listasmiðjum í sumar fyrir börn sem lokið hafa 3-7. bekk í grunnskóla.
Í ár verða 4 smiðjur í boði á tímabilinu 8. júní - 3. júlí, smiðjurnar eru eftirfarandi:
FabLab (Norðfjörður 8. - 12. júní)
Litla listasetrið (Reyðarfjörður 15. - 19. júní)
Leik og sprell (Eskifjörður 22. - 26. júní)
Tónlistarsmiðja (Fáskrúðsfjörður 29. júní - 3. júlí)
Við vekjum athygli á því að afsláttur fæst ef barn er skráð í fleiri en eina smiðju:
- Verð fyrir stakt námskeið er 15.000 kr.
- Veittur er systkinaafsláttur: 10.000 kr. fyrir hvert barn
- Ef barn tekur þátt í tveimur námskeiðum er veittur afsláttur: 10.000 kr. fyrir hvert námskeið
- Ef barn tekur þátt í þremur eða fleiri námskeiðum er veittur afsláttur: 5.000 kr. fyrir hvert námskeið
Frekari upplýsingar um hverja smiðju má finna á eftirfarandi hlekk: Sumarsmiðjur 2026
Skráning fer fram í gegn um íbúagátt Fjarðabyggðar. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Menningarstofu í síma 470-9061 og á menningarstofa@fjardabyggd.is
