Fara í efni
23.03.2026 Fréttir

Súpufundur með stjórnum félaga eldra fólks í Fjarðabyggð

Deildu

Föstudaginn 13. mars síðastliðinn bauð Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri stjórnum félaga eldra fólks í Fjarðabyggð á súpufund þar sem farið var yfir niðurstöður húsnæðiskönnunar sem lögð var fyrir íbúa 60 ára og eldri síðastliðið haust. Á fundinum var jafnframt rætt um stöðu húsnæðismála, þjónustu við eldri íbúa og þau verkefni sem eru í undirbúningi til að mæta þörfum vaxandi hóps eldri borgara í sveitarfélaginu.

Alls bárust 211 svör við könnuninni sem gefa mikilvæga mynd af stöðu og viðhorfum íbúa 60 plús í Fjarðabyggð. Einnig var kynnt starf Janusar heilsueflingar sem sinnir heilsueflingu 60 ára og eldri. Þar kom fram að þátttakendur séu nú 71 talsins, þjálfun fari fram á fimm stöðum og að boðið sé upp á styrktar- og þolþjálfun auk mælinga.

Á fundinum var einnig farið yfir verkefnið Gott að eldast, sem hófst árið 2024 með það að markmiði að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu. Fram kom að samningur milli Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Austurlands sé tilbúinn og samþykktur, og að verkefninu eigi að fylgja dagdvalarrými enda sé þörfin mikil. 

Góð mæting var með stjórnum félags eldra fólks og sköpuðust góðar umræður

Jafnframt var farið yfir stöðu hjúkrunarheimila í sveitarfélaginu og að lokum var fjallað um öldungaráð, skipan þess og starfsemi.

„Fundurinn með stjórnum félaga eldra fólks í Fjarðabyggð var afar gagnlegur og veitti okkur skýra mynd af því sem skiptir þennan hóp mestu máli. Niðurstöður könnunarinnar og þær umræður sem þar áttu sér stað eru mikilvægt innlegg í áframhaldandi stefnumótun sveitarfélagsins, sérstaklega þegar kemur að húsnæðisuppbyggingu. Með því að hlusta á raddir eldra fólks getum við betur markað skýra framtíðarsýn og forgangsraðað verkefnum sem styðja við öruggt búsetuumhverfi, aðgengi að þjónustu og aukin lífsgæði,“ sagði Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri.

Fundurinn var liður í áframhaldandi samtali Fjarðabyggðar við eldri íbúa og hagsmunaaðila um hvernig best verði brugðist við breyttum þörfum samfélagsins á komandi árum.