Það er enn tími til að taka þátt í Syndum. Landsátakið stendur til 30. nóvember og eru íbúar hvattir til að skella sér í sund í sundlaugum Fjarðabyggðar og skrá metrana sem þeir synda.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Sundsamband Íslands standa að átakinu til að hvetja fólk á öllum aldri til að hreyfa sig oftar. Hver metri telur þegar þátttakendur leggja saman sundvegalengdir sínar og synda í sameiningu hringinn í kringum landið.
Til að taka þátt skráir þú þig inn á Syndum.is og skráir sundvegalengdina undir Mínar skráningar. Þú getur notað sama notandanafn og í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna.
