Fara í efni
09.06.2026 Fréttir, Menning

Tækifæri og framtíð lista og menningar í landsbyggðunum

Deildu

Tækifæri og framtíð lista og menningar í landsbyggðunum

Austurbrú, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og Menningarstofa Fjarðabyggðar standa fyrir Skapandi Austurlandi – ráðstefnu um stöðu, tækifæri og framtíð lista og menningar í landsbyggðunum.

Á dagskrá eru erindi, pallborð og vinnustofur þar sem rætt verður um nýja menningarstefnu Austurlands, nýsköpun í skapandi greinum, starfsumhverfi listafólks og uppbyggingu stoðkerfa utan höfuðborgarinnar. Fulltrúar menningarmiðstöðva víðs vegar um landið, stjórnvalda og Rannsóknaseturs skapandi greina leiða saman krafta sína í samtali um hlutverk listarinnar í samfélaginu og framtíð skapandi atvinnu á Austurlandi.

Kaffi og veitingar verða í boði en skráning er nauðsynleg vegna hádegisverðar á Randulfssjóhúsi. Skráningarhnappur er hér fyrir neðan.

Dagskrá

Ráðstefnustjóri: Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar

10:15Kaffi, spjall og Óður til niðarins myndlistarsýning
10:45Opnunarávarp. Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
10:55Kynning á dagskrá. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar
11:00Kynning á nýrri menningarstefnu Austurlands. Signý Ormarsdóttir, verkefnastjóri menningar hjá Austurbrú, og Eva Jörgensen, verkefnastjóri samfélagsþróunar
11:15Rannsóknarsetur skapandi greina: Mótun og vöxtur. Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina
11:25Rannsóknasetur skapandi greina í landsbyggðum: Verkefni og rannsóknir. Steinunn Hauksdóttir, verkefnastjóri og sérfræðingur
11:35Menning, vertíð og verðmætasköpun. Arnar Sigurðsson, stofnandi Austan mána
12:00Hádegisverður á Randulfssjóhúsi
13:00Íslenskt menningarlíf – stefna, stuðningur og starfsumhverfi. Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu
13:30Tengsl og tengingar – vistkerfi menningarlífs Austurlands. Tinna Guðmundsdóttir, myndlistarkona og menningarstýra
13:50Miðstöðvar listgreina; bókmennta, myndlistar, sviðslista, hönnunar, kvikmynda og tónlistar
14:20Spurningar og umræður
14:40Vinnustofa. Jóna Hlíf Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna
15:50Ráðstefnu slitið. Bryndís Fiona Ford, framkvæmdastjóri Austurbrúar

Dagskrá að ráðstefnu lokinni

16:00–16:30Ferðatími: Eskifjörður – Reyðarfjörður
16:30–17:00Léttar veitingar á Reyðarfirði á myndlistaropnun Önnu Ólafar Jansdóttur og Louisu Matthíasdóttur
17:00–17:30Ferðatími: Reyðarfjörður – Stöðvarfjörður
17:30–18:30Sköpunarmiðstöðin heimsótt
19:00Náttúrusöngvar með kvæðakórnum. Kvæði kvödd, innblásin af staðarþekkingu og þjóðsögum af Skrúðskarlinum
19:15Kvöldmatur á L’Abri, Fosshóteli Fáskrúðsfirði

Skráning