Fara í efni
22.09.2026 Fréttir

Tæplega 30 hafa leitað til Píetaskjóls á Reyðarfirði

Deildu

Um tuttugu einstaklingar hafa hafið meðferð hjá Píetaskjólinu á Reyðarfirði frá opnun þess í febrúar 2025. Auk þess hafa tæplega tíu aðstandendur og syrgjendur nýtt sér þjónustuna.

Fulltrúar Píeta samtakanna kynntu starfsemina nýverið fyrir fjölskyldunefnd Fjarðabyggðar og fóru meðal annars yfir aðsókn og reynsluna af þjónustunni.

Fjarðabyggð og Píeta samtökin gerðu með sér þjónustusamning sem tók gildi 27. febrúar 2025. Sama dag var Píetaskjólið á Reyðarfirði opnað.

Fjárframlag Fjarðabyggðar til starfseminnar var upphaflega 700 þúsund krónur en var hækkað í 1,5 milljónir króna í september 2025 vegna eftirspurnar eftir þjónustunni og umfangs hennar. 

Fimm einstaklingar Klippa á borða við opnun píetaskjóls
Píeta veitir meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu eða sjálfsskaða og stuðning við aðstandendur þeirra og aðstandendur sem hafa misst. Þjónustan er fyrir 18 ára og eldri og er gjaldfrjáls.

Þjónusta fyrir allt Austurland

Píetaskjólið á Reyðarfirði þjónar Austurlandi, allt frá Höfn í Hornafirði að Vopnafirði. Eva Ólafsdóttir, meðferðaraðili Píeta, kemur að jafnaði austur einu sinni í mánuði og dvelur oftast í tvo daga. Fjöldi bókana ræður þó lengd hverrar heimsóknar.

Þjónustan er ætluð fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaða, aðstandendum þess og þeim sem hafa misst nákominn úr sjálfsvígi. Einnig er boðið upp á fjarviðtöl á milli heimsókna ráðgjafa.

„Það hefur sýnt sig að þörfin er mikil og líklegt er að aðeins brot þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda skili sér til okkar. Geðheilbrigðisþjónusta á Austurlandi er góð en mannekla veldur því að ekki er alltaf hægt að mæta þörfinni að fullu,“ segir Eva.

Hún segir mikilvægt að halda áfram að vekja athygli á þjónustunni. 

„Píetaskjólið á Reyðarfirði er vonandi komið til að vera svo lengi sem þörfin er fyrir hendi. Við þurfum að minna reglulega á þjónustuna svo fólk viti hvert það getur leitað.“

Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir, stjórnandi félagsþjónustu Fjarðabyggðar, segir samstarfið mikilvæga viðbót við þá þjónustu sem stendur íbúum til boða.

„Tölurnar sýna glögglega að þörf er fyrir þjónustu Píeta á Austurlandi. Með Píetaskjólinu á Reyðarfirði færist sérhæfð aðstoð nær íbúum landshlutans og fleiri eiga þess kost að leita sér stuðnings. Það skiptir máli að fólk viti af þjónustunni og að aðstoð sé í boði,“ segir Aðalheiður.

Nánari upplýsingar um þjónustu Píeta samtakanna má finna á pieta.is.